• Vefnámskeið um betri þjónustu

    Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á góð vefnámskeið sem fólk getur tekið hvar og hvenær sem er. Í mars 2019 opnast fjögur áhugaverð námskeið sem snúa að móttöku viðskiptavina og samskiptum í síma og með tölvupósti. 20 góð ráð í þjónustusímsvörun  8 lyklar að árangursríkum tölvupóstsamskiptum Þjóðerni og þjónusta - Góð ráð í samskiptum við erlenda […]

  • Aðalfundur Félags geislafræðinga – Breyting!!

    Borgartún 6 Borgartún 6, Reykjavík, Iceland

    Aðalfundur Félags geislafræðinga verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl 2019 kl. 17.00 að Borgartúni 6—Reykjavík Nú erum við í fundarsal á 4. Hæð Dagskrá: Skýrsla stjórnar. Endurskoðaðir reikningar félagsins kynntir og bornir undir fundinn. Lagabreytingar. Fjárhagsáætlun stjórnar kynnt ásamt ákvörðun um félagsgjöld. Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna reikninga. Kosning í lögboðnar nefndir félagsins. Önnur mál. Félag geislafræðinga Borgartúni […]

  • Norræna ráðstefnan – NCR 2019

    Radisson Blu Scandinavia Hotel Amager Boulevard 70, Copenhagen, Danmark

    Það muna allir hvað norræn ráðstefna myndgreiningarfólks tókst frábærlega í Reykjavík 2017! Nú bjóða frændur okkar Danir heim til Kaupmannahafnar í maí 2019. Full ástæða til að kynna sér það sem er á http://www.ncr2019.dk/

  • Hlutanetið (Internet of Things) – Ráðstefna Staðlaráðs og HR

    Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1, Reykjavík, Iceland

    Allir hlutir verða að lokum tengdir við Netið. Hægt verður að hafa eftirlit með öllum hlutum og fjarstýra breytingum á þeim. Hlutirnir munu mynda samofna heild og raunheimar verða eitt risastórt upplýsingakerfi. Meginþátturinn í þessari heild verður Hlutanetið, (Internet of Things, IoT). Þann 6. september verður ráðstefna um þessa spennandi hluti haldin í húsnæði Háskólans […]

  • Verkefnastjórnun – EHÍ

    Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, Reykjavik, Iceland

    Á öllum vinnustöðum eru ákveðin verkefni í gangi og þau geta þarfnast skipulagðrar stjórnunar. Úr kynnigartexta námskeiðsins: "...farið  er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur." Nánari upplýsingar og skráninga hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

  • Raförninn – Opið hús!!

    Raförninn, Suðurhlíð 35 Suðurhlíð 35, Reykjavík

    Það verður opið hús hjá Raferninum föstudaginn 25. október næstkomandi! Myndgreiningarfólk og aðrir sem tengjast starfsemi fyrirtækisins á einhvern hátt eru velkomin í heimsókn að Suðurhlíð 35 í Reykjavík, hvort sem um er að ræða núverandi, fyrrverandi eða tilvonandi viðskiptavini og samstarfsfólk 🙂 Raförninn á 35 ára afmæli á árinu og við vonum að sem […]

  • EHÍ – Jákvæð sálfræði og styrkleikaþjálfun

    Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, Reykjavik, Iceland

    Námskeið hjá Endurmenntun HÍ. Úr kynningartexta námskeiðsins: "Jákvæð sálfræði fæst við rannsóknir á því sem fólk gerir rétt frekar en því sem fólk gerir rangt. farið yfir rannsóknir á styrkleikum, bjartsýni og hamingju og fjallað um gildi jákvæðni fyrir sköpun og árangur. Einnig verður farið í kosti styrkleikaþjálfunar og hvernig hægt er að nýta sér […]

  • EHÍ – Tölvupóstar og stuttir textar

    Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, Reykjavik, Iceland

    Skrifaður texti gegnir stóru hlutverki, bæði í vinnu og einkalífi. Það getur skipt höfuðmáli að textinn sé skiljanlegur og settur þannig fram að fólk taki mark á honum. Úr kynningartexta námskeiðsins: "Farið verður í nokkur helstu einkenni texta sem samdir eru á íslensku og þátttakendur þjálfaðir í að semja stutta texta, t.d. tölvupósta, efni á […]

  • Harvard Medical – Quality and Safety (in radiology)

    WYNDHAM BOSTON BEACON HILL 5 Blossom Street, Boston, MA, United States

    Ráðstefna um gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu, með áherslu á læknisfræðilega myndgreiningu. Hljómar kunnuglega? Virðist vera sama þema og á Gæðavísisráðstefnunum sem Raförninn hélt yfir 10 ára tímabil. Virkilega spennandi... Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðu Harvard Medical School Dagskráin fyrir myndgreiningu er þar líka.

  • RSNA 2019

    McCormick Place, Chicago McCormick Place, Chicago, IL, United States

    Stóra, vandaða, gagnlega og skemmtilega ráðstefnan sem myndgreiningarfólk kannast við :) Árleg ráðstefna Radiological Society of North America, alltaf haldin í Chicago og þetta árið stendur hún yfir 1. - 6. desember. RSNA listi Arnartíðinda er hér... Nánari upplýsingar og skráning er á vefsíðu ráðstefnunnar.

  • Stjórnvísi – Ómeðvituð hlutdrægni

    Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1, Reykjavík, Iceland

    Við höfum öll einhverja fordóma, jafnvel þótt við vitum ekki af því. Það er mjög upplýsandi að skoða sjálfan sig markvisst og koma auga á hlutdrægni sem maður gerði sér ekki grein fyrir áður. Þannig gefst líka færi á að taka á þessari hlutdrægni, þannig að hún hafi síður áhrif á hegðun manns. Stjórnvísi býður […]