- This event has passed.
Hlutanetið (Internet of Things) – Ráðstefna Staðlaráðs og HR
06/09/2019
Allir hlutir verða að lokum tengdir við Netið. Hægt verður að hafa eftirlit með öllum hlutum og fjarstýra breytingum á þeim. Hlutirnir munu mynda samofna heild og raunheimar verða eitt risastórt upplýsingakerfi. Meginþátturinn í þessari heild verður Hlutanetið, (Internet of Things, IoT).
Þann 6. september verður ráðstefna um þessa spennandi hluti haldin í húsnæði Háskólans í Reykjavík. Meðal umfjöllunarefna verða innviðir, öryggi og staðlar tengt Internet of Things.
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Staðlaráði Íslands