- This event has passed.
Stjórnvísi – Ómeðvituð hlutdrægni
03/12/2019 frá 08:30 - 09:40
Við höfum öll einhverja fordóma, jafnvel þótt við vitum ekki af því. Það er mjög upplýsandi að skoða sjálfan sig markvisst og koma auga á hlutdrægni sem maður gerði sér ekki grein fyrir áður. Þannig gefst líka færi á að taka á þessari hlutdrægni, þannig að hún hafi síður áhrif á hegðun manns.
Stjórnvísi býður upp á stuttan morgunfund, þriðjudaginn 3. desember nk., þar sem kynntar eru aðferðir til að koma auga á eigin fordóma og vinna gegn hlutdrægni af þeirra völdum.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðu Stjórnvísi.