- This event has passed.
Geislafræðingur – Sjúkrahúsið á Akureyri
25/08/2017 - 11/09/2017
Myndgreiningardeild Sjúkrahússins á Akureyri óskar eftir geislafræðingi.
Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu auk bakvaktarskyldu um 2-4 daga í mánuði.
Staðan veitist frá 1. október 2017 eða skv. samkomulagi.
Myndgreiningardeildin er einn fjölbreyttasti vinnustaður sinnar tegundar á landinu, með öflugan rannsóknabúnað. Á deildinni eru m.a. framkvæmdar röntgen-, tölvusneiðmynda-, segulóm-, beinþéttni-, brjósta- og skyggnirannsóknir. Deildin er mjög vel tækjum búin og góður húsakostur.
Næsti yfirmaður er Elvar Örn Birgisson, forstöðugeislafræðingur.
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Nánari upplýsingar eru á Starfatorgi…