Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Geislafræðingur – Akureyri

25/09/2017 - 16/10/2017

Geislafræðingur á myndgreiningadeild Sjúkrahússins á Akureyri

Geislafræðingur

Myndgreiningadeild Sjúkrahússins á Akureyri óskar eftir geislafræðingi.

Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu auk bakvaktarskyldu um 2-4 daga í mánuði.

Staðan veitist frá 1. nóvember 2017 eða skv. samkomulagi.

Myndgreiningadeildin er einn fjölbreyttasti vinnustaður sinnar tegundar á landinu, með öflugan rannsóknabúnað. Á deildinni eru m.a. framkvæmdar röntgen-, tölvusneiðmynda-, segulóm-, beinþéttni-, brjósta- og skyggnirannsóknir. Deildin er mjög vel tækjum búin og góður húsakostur.

Næsti yfirmaður er Elvar Örn Birgisson, forstöðugeislafræðingur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum geislafræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur

Umsækjandi skal hafa fullgilt BSc próf í geislafræði.

Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.

Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2017

Nánari upplýsingar veitir

Elvar Örn Birgisson- elvar@sak.is – 8955646
Hulda Sigríður Ringsted- huldari@sak.is – 4630100

Details

Start:
25/09/2017
End:
16/10/2017