Hvað prýðir góða vefsíðu?

 - Fréttir

Raförninn hefur haldið úti vefsíðunni raforninn.is, í einhverri mynd, allt frá árinu 1998. Ef litið er á Wayback Machine má finna ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt sem birt hefur verið í gegnum árin.
Allskyns samfélagsbreytingar og tækniframfarir hafa kallað á endurskoðun og endurnýjun á vefsíðunni og gera enn, þannig að fljótlega verður nauðsynlegt að huga að breytingum. Það væri gaman að vita hvað notendur síðunnar vilja sjá á nútíma heimasíðu þjónustufyrirtækis. Hvaða upplýsingar eru mikilvægar, hvaða efni er áhugavert, hvert er hlutverk síðunnar í dag? Allar vangaveltur og tillögur eru mjög vel þegnar, skjótið endilega pósti á edda@raforninn.is