• Atvinna: Geislafræðingur – Orkuhúsið

    Röntgen Orkuhús óskar eftir geislafræðingi í fullt starf, reynsla af tölvusneiðmyndarannsóknum æskileg. Fullt starf telst vinna milli 8 og 17 fjóra daga vikunnar. Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Áhugasamir mega gjarnan leita upplýsinga hjá Einfríði í 8608856 eða einfridur@rontgen.is  eða Arnþóri 8527552, arnthor@rontgen.is www.rontgen.is    

  • Aðalfundur Félags geislafræðinga

    Borgartún 6 Borgartún 6, Reykjavík, Iceland

    Félag geislafræðinga heldur aðalfund sinn mánudaginn 23. apríl 2018, kl. 20:00, að Borgartúni 6 í Reykjavík í stóra fundarsalnum á 3. hæð Vonast er til að sem allra flestir félagsmenn sjái sér fært að mæta.

  • Heilbrigðistæknidagurinn 2018

    Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1, Reykjavík, Iceland

    Heilbrigðistækidagurinn 2018 verður fimmtudaginn 26. apríl í Háskólanum í Reykjavík. Yfirskriftin er „Heimkynni hugsunar og drauma. Framfarir í heila og taugarannsóknum.“ Fyrir heilbrigðistæknideginum standa Heilbrigðistæknifélag Íslands, Landspítali og Háskólinn í Reykjavík. Heilbrigðistæknidagurinn er öllum opinn, án þátttökugjalds, en fólk er beðið að skrá sig á skraning@ru.is Sjá nánar á vef Landspítala

  • Diplómadagar námsbrautar í geislafræði

    Háskóli Íslands - Stapi Sæmundargata 2, Reykjavik, Iceland

    Segja má að hinn árlegi diplómadagur námsbrautar í geislafræði hafi tvöfaldast því hann spannar tvo daga þetta árið, fimmtudaginn 24. maí nk. og föstudaginn 25. Vekja má athygli á að öllum áhugasömum er velkomið að koma og fylgjast með útskriftarnemum verja verkefni sín, sjá nánar í auglýsingu. Diplómadagurinn er haldinn í Stapa, Háskóla Íslands

  • FG – Framhaldsaðalfundur

    Borgartún 6 Borgartún 6, Reykjavík, Iceland

    Framhaldsaðalfundur Félags geislafræðinga verður haldinn miðvikudaginn 6. júní 2018 kl. 17.00 - 18.00 í stóra fundarsalnum á 3. hæð í Borgartúni 6, Reykjavík Fundarefni: Ákvörðun félagsgjalds Fjárhagsáætlun Með kveðju Stjórn FG --------------------------------------------------- Félag geislafræðinga Borgartúni 6 – 105 Reykjavík sími 595 5186 geislar@bhm.is - www.sigl.is

  • Fyrirlestur á LSH – Aukaverkanir geislameðferðar

    Marcel van Herk er heimsþekktur eðlisfræðingur á sviði eðlisfræði geislameðferðar og hefur stundað rannsóknir og haldið fyrirlestra um allan heim í áratugi. Í fyrirlestrinum talar Marcel um hvernig hann rannsakar aukaverkanir geislameðferðar með áður óþekktri nákvæmni með hjálp stórra gagnasafna af sneiðmyndum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Skásölum í kjallara Kvennadeildar Landspítala við Hringbraut fimmtudaginn 13. september […]

  • Geislafræðingur – Orkuhúsið

    Orkuhúsið Suðurlandsbraut 34, Reykjavík

    Í góðum hópi starfsfólks hjá Íslenskri myndgreiningu, í Orkuhúsinu, er pláss fyrir einn geislafræðing í fullt starf. Fullt starf telst vinna milli kl. 8 og 17, fjóra daga vikunnar. Frábært tækifæri fyrir skemmtilega fagmanneskju sem langar að vera með í að taka bestu myndir í bænum! Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. febrúar 2019. […]

  • Raförninn – Opið hús!!

    Raförninn, Suðurhlíð 35 Suðurhlíð 35, Reykjavík

    Þá er komið að því! Í ár höldum við októberfest og bjóðum fólki í heimsókn í Suðurhlíð 35, föstudaginn 19. október nk., klukkan 17. Allir velkomnir - Núverandi, fyrrverandi og tilvonandi viðskiptavinir og samstarfsfólk. Léttar veitingar í boði, létt skemmtiatriði, léttur fréttaflutningur og léttur og skemmtilegur félagsskapur! Takið daginn strax frá, því við viljum ekki missa […]

  • Myndgreining Hjartaverndar – Opið hús!

    Hjartavernd Holtasmári 1, Kópavogur, Iceland

    Kæra myndgreiningarfólk! Röntgendagurinn nágast óðfluga og af því tilefni verður opið hús hjá Myndgreiningu Hjartaverndar, föstudaginn 9. nóvember næstkomandi. Myndgreining Hjartaverndar hóf nýlega almenna myndgreiningarþjónustu sem byggir á grunni myndgreiningar í Hjartavernd þar sem í tæplega tvo áratugi hefur farið fram myndgreining, aðallega í vísindaskyni. Í ljósi breyttrar starfsemi hefur húsnæði verið breytt auk þess […]

  • RSNA 2018

    McCormick Place, Chicago McCormick Place, Chicago, IL, United States

    Árleg ráðstefna Radiological Society of North America er viðburður sem hver einasta manneskja í myndgreiningargeiranum ætti að sækja að minnsta kosti einu sinni... og helst sem oftast! RSNA 2018 er engin undantekning - Ótrúlega vönduð og umfangsmikil dagskrá. Nánari upplýsingar og skráning, á vefsíðu RSNA 2018 Listi yfir Íslendinga sem Arnartíðindi hafa frétt að séu […]

  • Læknadagar 2019

    Harpa Conference Center Austurbakka 2, Reykjavík, Iceland

    Á Læknadögum er margt áhugavert fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk. Allir heilbrigðisstarfsmenn eru velkomnir á Læknadaga og hægt er að kaupa aðgang að dagskrá í Hörpu þegar ráðstefna hefst. Skráningarborðið og miðasala er opið alla dagana á meðan á ráðstefnu stendur. Eingöngu dagpassar eru þó í boði en dagpassinn kostar kr. 13.000. Ekki er hægt að kaupa […]