Opið hús 2026!
Takið daginn frá!! Það verður opið hús hjá Raferninum föstudaginn 6. nóvember næstkomandi, frá kl. 17. Við bjóðum öll þau sem hafa áhuga á starfseminni okkar innilega velkomin. Alveg sama hver vinnustaðurinn er, við viljum endilega sjá þig í Suðurhlíð 35 í Reykjavík.
Það er ekki nauðsynlegt að hafa fengið boð sérstaklega og ekki heldur að skrá sig fyrirfram, þið eruð öll velkomin hvort sem þið hafið skráð ykkur eða ekki. Það er samt gott fyrir okkur að hafa hugmynd um hvað við erum að taka á móti mörgu fólki, til að það verði örugglega nógar veitingar
Kíkið þess vegna á Facebook síðu Rafarnarins og smellið á „Going“ sem fyrst!
Látið endilega það myndgreiningarfólk sem gæti haft áhuga á að koma vita.


