-
-
Málþing um nýja persónuverndarlöggjöf
Þetta málþing er áhugavert fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk, ekki síst myndgreiningarfólk með öll okkar bókana-, myndvinnslu- og myndgreymslukerfi! Mjög gott framtak hjá Landspítala og Persónuvernd. ATHUGIÐ: Til að áætla fjölda er óskað eftir að fólk skrái sig með því að senda póst á skraning@personuvernd.is Málþinginu verður streymt á vefsíðu Persónuverndar
-
Læknadagar 2018
Harpa Conference Center Austurbakka 2, Reykjavík, IcelandHinir árlegu Læknadagar standa yfir frá 15. til 19. janúar þetta árið og dagskráin er að vanda metnaðarfull, þéttskipuð fróðlegum og skemmtilegum viðburðum. Í ár á Læknafélag Íslands 100 ára afmæli og nokkrir dagskrárliðir tengjast þeim tímamótum. Aðrar heilbrigðisstéttir en læknar eru einnig hvattar til að sækja dagskrárliði á Læknadögum. Sjá nánar í frétt Arnartíðinda […]
-
UT messan 2018
Harpa Conference Center Austurbakka 2, Reykjavík, IcelandUpplýsingatækni leikur stórt hlutverk í læknisfræðilegri myndgreiningu og UT messan er fínt tækifæri til að sjá það nýjasta í tölvugeiranum. Það besta er að þarna er heilmargt fyrir tæknitröll og tölvugúrúa en líka sýningar og kynningar á "mannamáli" fyrir almenning. Úr kynningartexta ráðstefnunnar: "UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og hefur verið haldin […]
-
ECR 2018
Austria Center Vienna Bruno-Kreisky-Platz 1, Wien, AustriaStærsti viðburður innan myndgreiningar í Evrópu ár hvert er European Congress of Radiology sem haldin er í Vínarborg snemma vors. Ráðstefnan árið 2018 verður dagana 28. febrúar til 4. mars. Listi yfir íslenskt myndgreiningarfólk sem frést hefur að sé á leið á ECR er hér á raforninn.is Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðu ráðstefnunnar.
-
Íslendingar á ECR 2018
Hérna er hinn klassíski listi Arnartíðinda yfir Íslendinga sem hefur frést að verði á ECR 2018.
-
Atvinna: Geislafræðingur – Orkuhúsið
Röntgen Orkuhús óskar eftir geislafræðingi í fullt starf, reynsla af tölvusneiðmyndarannsóknum æskileg. Fullt starf telst vinna milli 8 og 17 fjóra daga vikunnar. Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Áhugasamir mega gjarnan leita upplýsinga hjá Einfríði í 8608856 eða einfridur@rontgen.is eða Arnþóri 8527552, arnthor@rontgen.is www.rontgen.is
-
Aðalfundur Félags geislafræðinga
Borgartún 6 Borgartún 6, Reykjavík, IcelandFélag geislafræðinga heldur aðalfund sinn mánudaginn 23. apríl 2018, kl. 20:00, að Borgartúni 6 í Reykjavík í stóra fundarsalnum á 3. hæð Vonast er til að sem allra flestir félagsmenn sjái sér fært að mæta.
-
Heilbrigðistæknidagurinn 2018
Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1, Reykjavík, IcelandHeilbrigðistækidagurinn 2018 verður fimmtudaginn 26. apríl í Háskólanum í Reykjavík. Yfirskriftin er „Heimkynni hugsunar og drauma. Framfarir í heila og taugarannsóknum.“ Fyrir heilbrigðistæknideginum standa Heilbrigðistæknifélag Íslands, Landspítali og Háskólinn í Reykjavík. Heilbrigðistæknidagurinn er öllum opinn, án þátttökugjalds, en fólk er beðið að skrá sig á skraning@ru.is Sjá nánar á vef Landspítala
-
Diplómadagar námsbrautar í geislafræði
Háskóli Íslands - Stapi Sæmundargata 2, Reykjavik, IcelandSegja má að hinn árlegi diplómadagur námsbrautar í geislafræði hafi tvöfaldast því hann spannar tvo daga þetta árið, fimmtudaginn 24. maí nk. og föstudaginn 25. Vekja má athygli á að öllum áhugasömum er velkomið að koma og fylgjast með útskriftarnemum verja verkefni sín, sjá nánar í auglýsingu. Diplómadagurinn er haldinn í Stapa, Háskóla Íslands
-
FG – Framhaldsaðalfundur
Borgartún 6 Borgartún 6, Reykjavík, IcelandFramhaldsaðalfundur Félags geislafræðinga verður haldinn miðvikudaginn 6. júní 2018 kl. 17.00 - 18.00 í stóra fundarsalnum á 3. hæð í Borgartúni 6, Reykjavík Fundarefni: Ákvörðun félagsgjalds Fjárhagsáætlun Með kveðju Stjórn FG --------------------------------------------------- Félag geislafræðinga Borgartúni 6 – 105 Reykjavík sími 595 5186 geislar@bhm.is - www.sigl.is
-
Fyrirlestur á LSH – Aukaverkanir geislameðferðar
Marcel van Herk er heimsþekktur eðlisfræðingur á sviði eðlisfræði geislameðferðar og hefur stundað rannsóknir og haldið fyrirlestra um allan heim í áratugi. Í fyrirlestrinum talar Marcel um hvernig hann rannsakar aukaverkanir geislameðferðar með áður óþekktri nákvæmni með hjálp stórra gagnasafna af sneiðmyndum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Skásölum í kjallara Kvennadeildar Landspítala við Hringbraut fimmtudaginn 13. september […]


