Aðalsteinn Atli Guðmundsson
Rafeindavirki
Farsími: +354 848 0114
Netfang: alli@raforninn.is
Aðalsteinn Atli Guðmundsson, rafeindavirki, hóf störf hjá Raferninum í ársbyrjun 2018.
Aðalsteinn lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2005 og sveinsprófi í rafeindavirkjun frá Tækniskólanum í Reykjavík haustið 2017. Auk þess hefur hann lokið tveimur önnum af tölvunarfræðinámi við Háskólann í Reykjavík. Á vinnumarkaði hefur Aðalsteinn aflað sér þekkingar og reynslu sem nýtist vel í starfi hjá Raferninum.
Aðalsteinn tekur þátt í allri tækniþjónustu Rafarnarins, meðal annars viðgerðum, reglubundu viðhaldi og gæðamælingum. Hann er einnig lykilmaður í umhverfismælingum sem Raförninn vinnur í samstarfi við Verkís.
Anton Þór Ólafsson
Rafeindavirki
Farsími: +354 695 5818
Netfang: anton@raforninn.is
Anton Þór Ólafsson, rafeindavirki, hóf fyrst störf hjá Raferninum vorið 2015, vann síðan hjá fyrirtækinu með hléum, meðfram námi, en hefur verið í fastri vinnu frá árinu 2021.
Anton lauk prófi í rafeindavirkjun frá Tækniskólanum í Reykjavík í árslok 2015, bætti síðan við sig námi á Háskólabrú, Verk- og raunvísindadeild, hjá Keili og fór þaðan í nám við háskólann í Umeå í Svíþjóð, þar sem hann lagði stund á heilbrigðistæknifræði.
Anton tekur þátt í allri tækniþjónustu Rafarnarins, meðal annars viðgerðum, reglubundnu viðhaldi og gæðamælingum. Á síðustu árum hefur hann verið að auka þekkingu sína og réttindi í þjónustu við segulómtæki og tölvusneiðmyndatæki og auk þess er hann nú byrjaður að taka þátt í þjónustu við PACS og RIS kerfi.
Ásbjörn H. Kristbjörnsson
Verkfræðingur
Farsími: +354 696 0931
Netfang: asbjornk@raforninn.is
Ásbjörn Haraldur Kristbjörnsson hóf störf hjá Raferninum í maí árið 2006. Hann lauk námi á tölvubraut í Iðnskólanum í Reykjavík haustið 2002 og útskrifaðist á sama tíma með stúdentspróf af tæknibraut. Hann hóf nám í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands haustið 2003 og útskrifaðist með B.Sc. gráðu á því sviði vorið 2006. Árið 2011 útskrifaðist hann svo frá sama skóla með meistaragráðu í hugbúnaðarverkfræði. Meistararitgerðin fjallaði um snertiskynjun vökva með aðstoð eðlisfræðihermis.
Ásbjörn hefur fjölbreytta reynslu af forritun, gagnagrunnum og margskonar hugbúnaðarlausnum og meðal verkefna hans hjá Raferninum er viðhald og þróun þjónustukerfa fyrirtækisins, ásamt ráðgjöf í ýmsum verkum.
Bryndís Eysteinsdóttir
Geislafræðingur
Farsími: +354 699 4713
Netfang: bryndis@raforninn.is
Bryndís Eysteinsdóttir hóf störf hjá Raferninum í maí 2008. Hún er geislafræðingur með BSc gráðu frá Tækniskóla Íslands og útskrifaðist árið 1990. Með geislafræðingsstarfinu hefur hún unnið við bókhald nokkurra fyrirtækja.
Bryndís var þjónustustjóri Rafarnarins til ársins 2019 en breytti þá starfsfyrirkomulagi sínu og vinnur nú við ýmis sérverkefni, meðal annars ráðgjöf.
Daníel Sigurðsson
Rafeindavirki
Farsími: +354 774 8332
Netfang: daniel@raforninn.is
Daníel Sigurðsson lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík vorið 2008 og hóf störf hjá Raferninum vorið 2014, þá nýútskrifaður með sveinspróf í rafeindavirkjun frá Tækniskólanum í Reykjavík. Haustið 2015 lauk Daníel svo námi á kerfisstjórabraut Nýja tölvu og viðskiptaskólans í Reykjavík.
Verkefni Daníels snúa meðal annars að gæðamælingum og eftirliti með röntgenbúnaði og ómtækjum, auk vinnu við viðhald og viðgerðir. Hann sér einnig um þjónustu Rafarnarins við ýmis tæki utan myndgreiningar, m.a. á rannsóknadeildum LSH og hjá öðrum heilbrigðisstofnunum og fyrirtækjum.
Edda G. Aradóttir
Gæðastjóri
Farsími: +354 860 3748
Netfang: edda@raforninn.is
Edda Guðbjörg Aradóttir útskrifaðist sem geislafræðingur frá Tækniskóla Íslands árið 1990 og hóf störf í hlutastarfi hjá Raferninum í maí 2002 en hefur verið í fullu starfi hjá fyrirtækinu frá október 2008. Hún hefur umsjón með gæðamálum, bæði innan fyrirtækisins og í verkefnum fyrir viðskiptavini.
Edda hefur mikla reynslu sem geislafræðingur á myndgreiningardeildum og hefur sótt mörg námskeið og ráðstefnur um gæðamál. Hún hefur einnig viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem sérfræðingur í gerð áætlana um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum. Edda vinnur flest sín verkefni fjarvinnu, þar sem hún er búsett við Eyjafjörð
Eiríkur K. Þorbjörnsson
Aðstoðarframkvæmdastjóri
Farsími: +354 863 2800
Netfang: eirikur@raforninn.is
Eiríkur K. Þorbjörnsson hóf störf hjá Raferninum í nóvember 2010. Hann er rafmagnstæknifræðingur frá Odense Teknikum (Syddansk Universitet) í Danmörku og með meistaragráðu í öryggis- og áhættustjórnun frá háskólanum í Leicester í Englandi.
Eiríkur hefur unnið við forritun og hugbúnaðargerð, bæði í Danmörku og á Íslandi, ásamt því að stofna og reka nokkur fyrirtæki í tölvu- og tæknigeiranum. Hann var framkvæmdastjóri Sambands íslenskra rafveitna á árunum 1987 – 1995 og framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar 1995 – 2000. Á árunum 2000 – 2005 rak hann verkfræðifyrirtækið ICESEC og fór þaðan til Rafteikningar sem síðar varð að Verkís hf.
Í dag starfar Eiríkur einnig sem verkefnastjóri Verkís, auk þess að vera aðstoðarframkvæmdastjóri Rafarnarins.
Jónas Már Kristjánsson
B.Sc í heilbrigðisverkfræði
Farsími: +354 866 6942
Netfang: jonas@raforninn.is
Jónas Már Kristjánsson byrjaði í starfsnámi hjá Raferninum vorið 2020 í gegnum samning Háskólans í Reykjavík við fyrirtækið. Hélt síðan áfram að vinna hjá fyrirtækinu meðfram námi og útskrifaðist í janúar 2021 með B.Sc. í Heilbrigðisverkfræði og auka önn í Tölvunarfræði. Hann stundar nú meistaranám í Gervigreindar Verkfræði við DTU, Danmarks Tekniske Universitet.
Jónas hannaði, í samvinnu við fleiri Raferni, hugbúnað sem greinir sjálfvirkt myndir af prófunarlíkönum fyrir gæðamælingar á almennum röntgentækjum og CT tækjum. Hugbúnaðurinn kallast SÚLA og hefur verið í notkun á myndgreiningardeildum LSH frá upphafi árs 2023. Meðfram meistaranáminu sinnir hann þjónustu við SÚLU og áframhaldandi þróun.
Magnús Guðjónsson
Rafiðnfræðingur
Farsími: +354 824 5723
Netfang: magnus@raforninn.is
Magnús Guðjónsson hóf störf hjá Raferninum í mars 2016. Hann er rafiðnfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og rafeindavirkjameistari frá Iðnskólanum.
Magnús hefur víðtæka reynslu af allri þjónustu við myndgreiningarbúnað og hefur sótt fjölda námskeiða á sínu sviði. Hann tekur þátt í öllu almennu viðhaldi, viðgerðum, gæðamælingum og uppsetningum á myndgreiningarbúnaði. Sérsvið hans eru þjónusta við tölvusneiðmyndatæki, segulómtæki og hjartaþræðingartæki.
Sigurður Haukur Bjarnason
Framkvæmdastjóri
Farsími: +354 698 8118
Netfang: siggib@raforninn.is
Sigurður Haukur Bjarnason hóf störf hjá Raferninum í febrúar 2016. Hann er rafiðnfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og rafvirkjameistari frá Iðnskólanum. Hann hefur viðtæka reynslu bæði af rafmagns- og tölvubúnaði og hefur lokið sérhæfðum námskeiðum um almennan röntgenbúnað og tölvusneiðmyndatæki.
Sigurður tók við stöðu framkvæmdastjóra Rafarnarins haustið 2017 og því er rekstur fyrirtækisins hans aðalstarf en auk þess tekur hann þátt í viðgerðum og uppsetningum á myndgreiningarbúnaði.
Sigurður Rúnar Ívarsson
Rafeindavirkjameistari
Farsími: +354 892 9662
Netfang: siggi@raforninn.is
Sigurður Rúnar Ívarsson hóf störf hjá Raferninum 1993, var einn af eigendum fyrirtækisins til ársins 2010 og í fullu starfi til ársins 2018. Frá þeim tíma hefur hann tekið að sér að sér ýmis sérverkefni þar sem hæfni hans og reynsla nýtast best.
Sigurður Rúnar er með eftirfarandi réttindi:
Rafeindavirkjameistari. Rafmagnsiðnfræðingur frá Tækniskóla Íslands. Rafvirkjameistari. Rafverktakaleyfi (no. 553) frá Löggildingastofu og Umhverfisráðuneyti. 20 einingar í líffræði við Háskóla Íslands. Diplóma í rekstariðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Smári Kristinsson
Tæknifræðingur
Farsími: +354 892 4125
Netfang: smari@raforninn.is
Smári Kristinsson er tæknifræðingur frá Tækniskólanum í Árósum. Hann er einn af upphaflegum stofnendum Rafarnarins og hefur unnið hjá fyrirtækinu síðan 1984.
Smári sinnir ýmiskonar ráðgjöf, meðal annars breytingastjórnunarráðgjöf við myndgreiningarstarfsemi, innkauparáðgjöf við kaup á myndgreiningarbúnaði og ráðgjöf í verkefnum sem snúast um gæðamál á myndgreiningardeildum.
Þorsteinn R. Jóhannesson
Rafeindavirki
Farsími: +354 896 5435
Netfang: steini@raforninn.is
Þorsteinn Ragnar Jóhannesson er rafeindavirki frá Iðnskólanum í Reykjavík og hóf störf hjá Raferninum árið 1993. Hann hefur sinnt margskonar verkefnum fyrir Raförninn, m.a. þróað ýmsa sérhæfða tækniþjónustu fyrir viðskiptavini.
Þorsteinn er sérfræðingur í þjónustu RIS og PACS kerfa og segulómtækja og hefur sótt fjölda námskeiða á sínum sérsviðum. Hann ber einnig ábyrgð á þjónustu fyrirtækisins varðandi hugmyndahönnun og undanfarið hefur hann komið sífellt meira inn í verkefnastjórnun og ráðgjöf.