BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Raförninn ehf - ECPv6.15.11//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Raförninn ehf
X-ORIGINAL-URL:https://raforninn.is
X-WR-CALDESC:Events for Raförninn ehf
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181110
DTEND;VALUE=DATE:20190224
DTSTAMP:20260426T174134
CREATED:20180503T213657Z
LAST-MODIFIED:20181031T221740Z
UID:1107-1541808000-1550966399@raforninn.is
SUMMARY:EHÍ - Spennandi námskeið á haustönn
DESCRIPTION:Endurmenntun HÍ er alltaf með fjölbreytt úrval góðra námskeiða og lengri námsbrauta. Það er uppbyggjandi að huga að gagnlegu og skemmtilegu námi 🙂 \nÞeir sem ætla í umfangsmeira nám hafa gagn af að læra akademísk vinnubrögð\, hvort sem langt er liðið frá því síðast var sest á skólabekk eður ei\, og ef stefnt er á nám í einhverskonar tæknigrein getur verið gott að dusta rykið af stærðfræðinni.\nSkapandi samskipti og færni í tjáningu er frábært að kynna sér\, hvort tveggja er mikilvægt í starfi\, námi og bara í lífinu almennt.\nFólk sem er að taka að sér stjórnunarstörf getur undirbúið sig með námskeiðinu Stjórnun fyrir nýja stjórnendur og þeir sem þegar eru í stjórnunarstöðum gætu örugglega haft gagn af að kynna sér greiningu ferla og ferlastjórnun. Svo þurfa allir\, í hvaða starfi sem er\, að huga að vellíðan og velgengni í starfi.\nGæðastjóri Rafarnarins getur ekki stillt sig um að benda á námskeið um verkfærakistu Google\, enda segja sumir að hún láti Google vin sinn um að stjórna lífi sínu 😉\nMargir hafa örugglega áhuga á að ná betri tökum á ensku talmáli. Flest skiljum við ensku ágætlega og getum skrifað texta en að tala málið af öryggi\, í vinnu og frítíma\, getur verið allt annar handleggur.\nÞegar enskan er komin er upplagt að leggjast í ferðalög og þá getur t.d. verið gaman að fá leiðsögn um hvernig hægt er að upplifa ævintýraeyjuna Tenerife á einstakan hátt. Á Tenerife og fleiri stöðum erlendis má oft sjá vindmyllur sem framleiða rafmagn og einhverja langar örugglega til að fræðast um hvernig fólk beislar jafnt suðræna vinda sem rammíslenskt rok til orkuvinnslu! Erlendis eru líka grafnir gimsteinar úr jörð og þessi glitrandi undur náttúrunnar heilla marga með fegurð sinni\, verðmæti og sögu sem stundum er falleg en stundum ofbeldisfull og jafnvel blóði drifin.\nSvo er líka hægt að leggja áherslu á Ísland og íslenskuna\, t.d. með námskeiðunum Íslensk öndvegisljóð\, Íslensk fatasaga og uppruni lopapeysunnar og Skrif…andi sem bendir á leiðir til að skrifa sér til gamans og opna fyrir flæði og hugmyndir.\nMargar athafnakonur á besta aldri eru í lesendahópi Arnartíðinda og til að halda orku og gleði gæti sá hópur t.d. kíkt á námskeið sem leggur áherslu á fæðu og flóru fyrir hraustan líkama og heilbrigða sál. Jóga hefur líka gefist mörgum vel\, bæði fyrir líkama og sál\, og sumir færa rök fyrir því að örveruflóra líkamans hafi veruleg áhrif á sálarástandið. \nÞetta eru nokkur dæmi um það sem verður í boði hjá EHÍ á haustmisseri 2018 en ótalmargt fleira er á dagskránni.
URL:https://raforninn.is/event/ehi-spennandi-namskeid-i-haust/
LOCATION:Endurmenntun HÍ\, Dunhagi 7\, Reykjavik\, Iceland
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190109
DTEND;VALUE=DATE:20190206
DTSTAMP:20260426T174134
CREATED:20190109T190655Z
LAST-MODIFIED:20190206T175153Z
UID:1380-1546992000-1549411199@raforninn.is
SUMMARY:Raförninn óskar eftir tæknimanni.
DESCRIPTION:Raförninn óskar eftir að ráða tæknimann í þjónustuteymi fyrirtækisins. Meginverkefni eru uppsetningar\, viðhald\, eftirlit og gæðamælingar ýmissa lækningatækja\, auk annarra tilfallandi verkefna. \nGott tækifæri til að vinna í samhentum hópi\, að fjölbreyttum og spennandi verkefnum fyrir góða viðskiptavini. \nNánari upplýsingar á job.is og/eða í síma 698 8118
URL:https://raforninn.is/event/raforninn-oskar-eftir-taeknimanni/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190121
DTEND;VALUE=DATE:20190126
DTSTAMP:20260426T174134
CREATED:20190114T205846Z
LAST-MODIFIED:20190115T232348Z
UID:1385-1548028800-1548460799@raforninn.is
SUMMARY:Læknadagar 2019
DESCRIPTION:Á Læknadögum er margt áhugavert fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk. \nAllir heilbrigðisstarfsmenn eru velkomnir á Læknadaga og hægt er að kaupa aðgang að dagskrá í Hörpu þegar ráðstefna hefst. Skráningarborðið og miðasala er opið alla dagana á meðan á ráðstefnu stendur. Eingöngu dagpassar eru þó í boði en dagpassinn kostar kr. 13.000. Ekki er hægt að kaupa sig inn á staka fyrirlestra eða hálfan dag. \nÞað er mælt með því að mæta snemma ef gestir eru að kaupa sér passa á staðnum þar sem raðir geta myndast nokkrum mínútum áður en fyrirlestrar hefjast. Það má einnig nefna að ekki er hægt að senda reikning á fyrirtæki fyrir þátttökugjöldum heldur þarf að greiða þátttökugjöld við skráningu. \nÞeir sem vilja meiri upplýsingar geta haft samband við radstefnur@icelandtravel.is \nDagskrána má m.a. finna í Læknablaðinu og ritstjóri Arnartíðinda tók í fljótheitum saman yfirlit um dagskrárliði sem gætu vakið áhuga flestra: \nMánudaginn 21. janúar eru hádegisverðarfundir með fókus á samskipti milli heilbrigðisstétta og innan þeirra. Seinnipartinn má t.d. benda á umfjöllun um teymisvinnu\, þróun hennar og framtíðaráskoranir. \nAllir vilja geta notið efri áranna\, með heilann í góðu lagi\, og þess vegna má benda á að á þriðjudagsmorgni er meðal annars fjallað um aðferðir sem fólk getur notað alla ævi til að minnka líkur á heilabilun. Seinnipart dagsins er t.d. hægt að fræðast um niðurstöður könnunar á líðan og starfsaðstæðum lækna á Íslandi. \nFyrri hluta miðvikudags eru a.m.k. tvær fyrirlestraraðir áhugaverðar fyrir alla; annarsvegar er fjallað um langvinna\, útbreidda stoðkerfisverki\, m.a. af völdum vefjagigtar\, og hinsvegar er umfjöllun um ofbeldi. Seinnipartinn má m.a. benda á fyrirlestraraðir um augnþurrk og um óvinnufærni og kl. 16:20 er mjög áhugaverður dagskrárliður þar sem tíu heimilislæknar á ýmsum aldri og frá ýmsum stöðum segja frá eftirminnilegum atvikum úr starfi sínu. Á miðvikudagskvöld er svo fundur opinn almenningi þar sem fjallað er um bólusetningar á Íslandi. \nHeilsa og líðan læknanema og lækna er í brennidepli fyrripart fimmtudagsins 24. janúar og í hádeginu er fundur þar sem áhugaverð fullyrðing kemur fram í yfirskrift: „Rafræn skráning sjúklinga er einn helsti streituvaldur lækna í starfi\, hvað er til ráða?“ Fundurinn er á vegum styrktaraðila og er forvitnilegt að vita hvað kemur fram á honum. \nÁ föstudagsmorgninum er meðal annars hægt að fræðast um fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi\, sem er mjög áhugavert í landi með dreifðri byggð og oft erfiðum samgöngum. Seinnipart föstudags má svo benda á skemmtilega fyrirlestraröð þar sem tekin eru fyrir\, bæði í gamni og alvöru\, áföll og áfallastreita í bókmenntum fyrri alda. Læknadögum lýkur svo með skemmtun á föstudagskvöldi.
URL:https://raforninn.is/event/laeknadagar-2019/
LOCATION:Harpa Conference Center\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
END:VEVENT
END:VCALENDAR