BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Raförninn ehf - ECPv6.15.11//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://raforninn.is
X-WR-CALDESC:Events for Raförninn ehf
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181110
DTEND;VALUE=DATE:20190224
DTSTAMP:20260426T143645
CREATED:20180503T213657Z
LAST-MODIFIED:20181031T221740Z
UID:1107-1541808000-1550966399@raforninn.is
SUMMARY:EHÍ - Spennandi námskeið á haustönn
DESCRIPTION:Endurmenntun HÍ er alltaf með fjölbreytt úrval góðra námskeiða og lengri námsbrauta. Það er uppbyggjandi að huga að gagnlegu og skemmtilegu námi 🙂 \nÞeir sem ætla í umfangsmeira nám hafa gagn af að læra akademísk vinnubrögð\, hvort sem langt er liðið frá því síðast var sest á skólabekk eður ei\, og ef stefnt er á nám í einhverskonar tæknigrein getur verið gott að dusta rykið af stærðfræðinni.\nSkapandi samskipti og færni í tjáningu er frábært að kynna sér\, hvort tveggja er mikilvægt í starfi\, námi og bara í lífinu almennt.\nFólk sem er að taka að sér stjórnunarstörf getur undirbúið sig með námskeiðinu Stjórnun fyrir nýja stjórnendur og þeir sem þegar eru í stjórnunarstöðum gætu örugglega haft gagn af að kynna sér greiningu ferla og ferlastjórnun. Svo þurfa allir\, í hvaða starfi sem er\, að huga að vellíðan og velgengni í starfi.\nGæðastjóri Rafarnarins getur ekki stillt sig um að benda á námskeið um verkfærakistu Google\, enda segja sumir að hún láti Google vin sinn um að stjórna lífi sínu 😉\nMargir hafa örugglega áhuga á að ná betri tökum á ensku talmáli. Flest skiljum við ensku ágætlega og getum skrifað texta en að tala málið af öryggi\, í vinnu og frítíma\, getur verið allt annar handleggur.\nÞegar enskan er komin er upplagt að leggjast í ferðalög og þá getur t.d. verið gaman að fá leiðsögn um hvernig hægt er að upplifa ævintýraeyjuna Tenerife á einstakan hátt. Á Tenerife og fleiri stöðum erlendis má oft sjá vindmyllur sem framleiða rafmagn og einhverja langar örugglega til að fræðast um hvernig fólk beislar jafnt suðræna vinda sem rammíslenskt rok til orkuvinnslu! Erlendis eru líka grafnir gimsteinar úr jörð og þessi glitrandi undur náttúrunnar heilla marga með fegurð sinni\, verðmæti og sögu sem stundum er falleg en stundum ofbeldisfull og jafnvel blóði drifin.\nSvo er líka hægt að leggja áherslu á Ísland og íslenskuna\, t.d. með námskeiðunum Íslensk öndvegisljóð\, Íslensk fatasaga og uppruni lopapeysunnar og Skrif…andi sem bendir á leiðir til að skrifa sér til gamans og opna fyrir flæði og hugmyndir.\nMargar athafnakonur á besta aldri eru í lesendahópi Arnartíðinda og til að halda orku og gleði gæti sá hópur t.d. kíkt á námskeið sem leggur áherslu á fæðu og flóru fyrir hraustan líkama og heilbrigða sál. Jóga hefur líka gefist mörgum vel\, bæði fyrir líkama og sál\, og sumir færa rök fyrir því að örveruflóra líkamans hafi veruleg áhrif á sálarástandið. \nÞetta eru nokkur dæmi um það sem verður í boði hjá EHÍ á haustmisseri 2018 en ótalmargt fleira er á dagskránni.
URL:https://raforninn.is/event/ehi-spennandi-namskeid-i-haust/
LOCATION:Endurmenntun HÍ\, Dunhagi 7\, Reykjavik\, Iceland
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181125
DTEND;VALUE=DATE:20181201
DTSTAMP:20260426T143645
CREATED:20180810T131735Z
LAST-MODIFIED:20181115T194903Z
UID:1205-1543104000-1543622399@raforninn.is
SUMMARY:RSNA 2018
DESCRIPTION:Árleg ráðstefna Radiological Society of North America er viðburður sem hver einasta manneskja í myndgreiningargeiranum ætti að sækja að minnsta kosti einu sinni… og helst sem oftast! \nRSNA 2018 er engin undantekning – Ótrúlega vönduð og umfangsmikil dagskrá. \nNánari upplýsingar og skráning\, á vefsíðu RSNA 2018 \nListi yfir Íslendinga sem Arnartíðindi hafa frétt að séu á leið á RSNA í ár er kominn á raforninn.is
URL:https://raforninn.is/event/rsna-2018/
LOCATION:McCormick Place\, Chicago\, McCormick Place\, Chicago\, IL\, United States
END:VEVENT
END:VCALENDAR